Sturla Ólafsson sigraði um helgina mót sem hefur ýmist verið kallað Sterkasti maður íslands -105kg, Viðeyjarjarlinn eða Sterkasti maður viðeyjar.

Fyrsta grein mótssins var nýtt fyrirbæri á íslandi, en það var kast yfir rá á tíma. kastað var 15kg bjórkút, tvem 16kg ketilbjöllum, 20kg bjórkút og 25kg lóði yfir 365cm (12ft). Árni freyr var fyrstur til að byrja og náði glæsilegum tíma, 19,21sek. og hélt besta tímanum þar til kom að Stulla en Stulli mætti ferskur í köstin og bætti tíman um tvær sek og var með 17,02sek. frábær spenna í þessari grein því Andri Björns var með frábærann tíma líka, aðeins sekúntubrotum frá Árna, 19,57sek.
næsta grein var 50kg Sirkús handlóð á reps. það var nokkuð ljóst að Andri Björns var eitthvað búinn að æfa vel fyrir þessa grein því hann tók mjög traustann sigur með 13 lyftur á 90sek. næstir voru Brynjar og Sturla með sitthvor 10 repsin og Árni Freyr og GeirJón jafnir í 4-5 sæti með 9stk hvor.
þriðja grein var vel þungur trukkadráttur með traktor upp mikinn halla og dregið 25 metra á hellulagðri gangstétt. aðeins tveir menn gátu klárað og það voru reynsluboltarnir, Árni Freyr og Sturla, en Sturla var með betri tíma, 58,4sek en Árni fór brautina á 74,65sek.
Næsta grein var heldur til létt, en það var 105kg bóndaganga, 25metrar á tíma. eina ferðina enn var mikil spenna í greininni og Árni Freyr og Sturla voru næstum jafnir á tíma en Stulli vann með 10,03 sek á móti 10,75 sek hans Árna. ótrúlega jafnt. Eitt vakti hinsvegar athygli margra að Þröstur Ólafsson, kraftlyftingakeppandi sem var á sínu fyrsta móti og varla búinn að prufa greinarnar áður hefði mjög líklega unnið þessa grein ef að hann hefði ekki misst lóðin á miðri leið. Hann urraði áfram á ógnarhraða og kláraði með einu droppi á 13,48 sek.
síðasta grein var Atlassteina hleðsla, 90. 110. 125. 40kg. Úrslit þessarar greinar kom mörgum að óvart þegar Andri Björns var sá eini sem náði að klára greinina. steinarnir voru á grasi og þegar menn eru með harpix á puttunum festist grasið bara í harpixinu og það truflaði vissulega keppendur. Árni freyr var í öðru sæti í þessari grein og Sturla í þriðja, báðir undir 20sek með 3 steina.
Stulli fer hér létt með 50kg handlóðið.
Heildarúrslit:
Sæti
|
Nafn
|
1.grein |
2.grein
|
3.grein
|
4.grein
|
5.grein
|
Stig
|
| 1. |
Sturla Ólafsson
|
11 |
9,5 |
11
|
11
|
9
|
51,5
|
| 2. |
Árni Freyr Gestsson
|
10
|
7,5
|
10
|
10
|
10
|
47,5
|
| 3. |
Andri Björnsson
|
9 |
11
|
9
|
4
|
11
|
44
|
| 4. |
Geir Jón Geirsson
|
6 |
7,5
|
8
|
7
|
7
|
35,5
|
| 5. |
Brynjar Karl Guðmundsson
|
6 |
9,5
|
3
|
9
|
4
|
31,5
|
| 6. |
Daníel Þór Gerena
|
6 |
4
|
6
|
5
|
8
|
29
|
| 7. |
Þröstur Ólafsson
|
6 |
5,5
|
2
|
8
|
3
|
24,5
|
| 8. |
Daníel Sæmundsson
|
2,5 |
5,5
|
7
|
6
|
2
|
23
|
| 9. |
Kolbeinn Ari Hauksson |
6 |
2
|
5
|
2
|
6
|
21
|
| 10. |
Hafliði Arnar Bjarnarson
|
2,5 |
2
|
4
|
3
|
5
|
16,5
|
| 11. |
Sigurður Kristján Grímlaugsson
|
1 |
2
|
1
|
1
|
1
|
6 |